Ljósmyndarar og blöðrur á stultum
Sigurður Ýmir, 13.05 2009, undir Ljósmyndun
4. ljósmyndaferðin sem ég fór í í vetur og frá upphafi með lmk.
Alltaf gaman að hitta skemmtilegt fólk með sama áhugamáli, og þá get ég loksins þóst eiga einhverja vini. Við s.s. hittumst kl 10 sunnudagsmorguninn í Hafnarfirði og ég fékk far með honum Davíð. Fólkið á lmk er svo yndislegt, og fyrsta stopp var sérstklega tileinkað mér, Flekkuvík.
Tókum Vatnsleysuströndina á rólegu nótunum og vorum ekki komin í Keflavík fyrr en rétt fyrir hádegi. þar bættust einhverjir við í hópinn, komnir 7 bílar þá, og var haldið áfram yfir að Garðskagavita. Þá var lítið sem ekkert í sjónum, og mig grunar að vitinn hafi komið að litlu gagni, þar sem hann var kominn lengst inn í land.
Keyrðum því næst gegnum Sandgerði, og alla leið fram hjá Höfnum þar sem við tókum stutt stopp við einhvern vita rétt hjá, en í stað þess að mynda hann leist mér miklu betur á blöðurnar á stultunum sem stóðu þar á beit rétt hjá. Lítið spennandi við þær, rétt eins og venjulega.
En þá var komið að Reykjanestánni. Komum þangað, og rétt eins og á Garðskaga, þá gat maður hæglega gengið niður að klettunum sem áttu víst að standa út í miðjum sjó og bullandi brimi. Þarna kom þessi hópur og um leið æddi flokkur kolgeðveikra áhugaljósmyndara beint niður í fjöru og ætti undir venjulegum kringumstæðum að vera skolað sjómílur út á haf eða klesstir við bjargið ásamt öllu sínu myndavélafargi (ég er þar ekki undanskilinn).
Ljósmyndun getur verið svo skemmtileg en um leið snælduvitlaus fávitaskapur, sem einmitt gerir það skemmtilegt. Eftir að hafa kíkt á Reykjanestánna og tekið þá erfiðu ákvörðun um að ana ekki beint út í bullsjóðandi dauðagildru sem kallast víst Gunnuhver, þá skelltum við okkur yfir að Brimkatli, sem er að sjálfsögðu engu hættuminni. Héngum þarna yfir bullfrussandi sjónum sem reglulega teigði sig 10 metra upp í loftði, sumum þó til ama. Næst var talað um að fara í bláa lónið, og hversu kaldhæðið sem það virðist vera, þá loksins þegar við Davíð vorum fremstir í bílaröðinni, tókst okkur að týna hópnum.
S.s. við skelltum okkur upp að lóninu, en eftir að búið var að taka beygjuna þangað upp að, ákvað ekki restin af hópnum að bíða með það og fara að skoða gamlar riðdollur grotnandi niður í fjörunni. Svo þannig endaði það allavega hjá okkur með hópnum, smellltum nokkrum myndum af lóninu og brunuðum svo í bæinn. Svo trúi ég því ekki að það hafi verið gaman að mynda skipsflökin, hefur örugglega verið hundleiðinlegt þar sem okkur vantaði.
En er hérna með nokkrar myndir úr ferðinni.

Davíð og Siggi

Sumir að fíla þennan kross í botn
Bragi vinstra megin, svo Heida og að lokum Siggi

Neddi

Flekkuvík


Blörðurnar á stultunum

Reykjanestáin
Fleiri myndir úr ferðinni eru á Flickr
Kveðja Sigurður
Vorboði
Sigurður Ýmir, 25.04 2009, undir Ljósmyndun
Sumarið fer að koma og viðeigandi eyðibýlaferðir um leið. Kíkti í Flekkuvík á Fimmtudaginn í frábæru veðri, logni og sólskini. Auðvitað var viðeigandi magn af fuglahræjum þarna eins og á hverju sumri, sem er að sjálfsögðu okkar kæri vorboði.



Kveðja Sigurður
Ný linsa, önnur í kaupbæti!
Sigurður Ýmir, 24.02 2009, undir Ljósmyndun
Eftir margra mánaða óþolandi kreppubið lét ég loks verða að því að kaupa linsu. Núna á fimmtudaginn keypti ég mér Tamron 17-50mm f/2.8 eins og ég hef lengi verið að spá í, ódýr og góð, og fann hana þar að auki á tilboði í Osló, nánar til tekið 48.000 kr. Virkilega góð linsa, og sé ekki eftir þessum pening.
Síðan fékk ég aðra linsu, Canon 55-250mm f/4-5.6, sem ég fékk gefins frá foreldrum mínum, virkilega góð linsa, sérstaklega miðað við verð og er virkilega ánægður með þessa.
En hérna eru nokkrar myndir frá síðustu dögum, teknar með nýju linsunum.
Tamron 17-50mm…





Canon 55-250mm…





Kveðja Sigurður