Archive for June, 2008
Upphafið …
Sigurður Ýmir, 22.06 2008, undir Annað
Fjölskyldan keypti núna fyrir stuttu lénið richter.is vegna áhugaleysis annarra fjarskyldra ættingja með sama ættarnafn. Þegar kaupin höfðu verið fest, datt mér í hug að nýta mér það og skella mér í undirlénið sigurdur.richter.is. Síðan er samansett af Wordpress og Zenphoto. Wordpress hefur reynst mér mjög vel og hefur “næstum” alltaf virkað, en Zen photo er eitthvað sem ég er fyrst að prófa núna og virkar frábærlega.
Í galleríinu eru núna þrír flokkar, eyðibýli, Náttúra ( eða landslag ) og. Ég ætla rétt að vona að fleiri flokkar bætist við en síðan er enn í vinnslu.
Þetta blog er fyrst og fremst hugsað sem myndablog, eins og sumir sem ég þekki til hafa notað. Ég veit Þó ekki alveg hvað þetta endist lengi, hef aldrei staðið mig vel sem bloggari, en ég ætla samt að prófa.
Ég er með myndir á fleiri vefsíðum eins og flickr.com, en hérna ætla ég að hafa sérvaldar myndir úr þeim hópum.
Ég vona bara að sem flestir renni í gegnum safnið og hafi gaman af =)
Kveðja Sigurður