Sigurður Ýmir Richter’s blog

Stúdíóstuð!

Sigurður Ýmir, 17.02 2009, undir Ljósmyndun

Nú er snjórinn farinn, en í staðinn er komin grenjandi rigning. Og virðist ekki ætla að fara á næstunni. Og mér leiddist svo mikið heima í dag. Svo mér datt í hug að fara að ljósmyndaflippast enn einu sinni með hundinum. Við fórum og sóttum svart teppi (sem ég hafði fengið í jólagjöf, og er sérstaklega sáttur með það núna), hengdum það á tvö stólbök, skeltum dýnu undir (allt fyrir módelið) og skellti þessu öllu fyrir framan hvítan vegg. Þar næst skelti ég flassinu á, settist við vegginn, kallaði á krakkagrísinn, og þarna var komið þetta fína mini stúdíó með tveimur módelum í kaupbæti. :)

The studio
Stúdíóið eins og það leggur sig

Og síðan nokkrar þaðan…

February 17th, nr. 41

Kveðja Sigurður

Enginn hefur tjáð sig enn...

Hvað finnst þér?

Ertu að leita að einhverju?

Skelltu inn leitarorðinu í kassann hér fyrir neðan: