Stúdíóstuð!
Sigurður Ýmir, 17.02 2009, undir Ljósmyndun
Nú er snjórinn farinn, en í staðinn er komin grenjandi rigning. Og virðist ekki ætla að fara á næstunni. Og mér leiddist svo mikið heima í dag. Svo mér datt í hug að fara að ljósmyndaflippast enn einu sinni með hundinum. Við fórum og sóttum svart teppi (sem ég hafði fengið í jólagjöf, og er sérstaklega sáttur með það núna), hengdum það á tvö stólbök, skeltum dýnu undir (allt fyrir módelið) og skellti þessu öllu fyrir framan hvítan vegg. Þar næst skelti ég flassinu á, settist við vegginn, kallaði á krakkagrísinn, og þarna var komið þetta fína mini stúdíó með tveimur módelum í kaupbæti.

Stúdíóið eins og það leggur sig
Og síðan nokkrar þaðan…
Kveðja Sigurður
Ljósmyndaferðin 25.
Sigurður Ýmir, 01.02 2009, undir Ljósmyndun
Sunnudaginn sl. lét ég verða að því að skreppa í annað sinn með lmk-ingum í ljósmyndaferð. Í þetta sinn ver ferðinni heitið austur fyrir fjall og á Þingvelli. Þessi ferð var að vísu þó fjölmennari en sú síðasta, enda ekki ýkja löng ferð. Dgaurinn byrjaði snemma og hittist hópurinn í Norðlingaholti. Við lögðum af stað rétt fyrir sólarupprás í þeirri von um að ná sólarupprásinni í við Hellisheiðarvirkjun, og var ég í bíl með honum Ottó á lmk. Þegar komið var á Hellisheiðarvirkjun hafði víst Reykjafell skellt sér fyrir austan við virkjunina bara til að hrekkja okkur. svo áfram héldum við og rétt náðum sólinni þegar komið var fyrir ofan Hveragerði.Allir smellandi á fullu af og ég efast ekki um að það hafi verið þó nokkur hundruð myndir teknar af sama myndefninu frá sama sjónarhorni. Næsta stop var örfáum kílómetrum seinna, og þó furðulegt megi virðast, þá voru enn fleiri rammar teknir af sólarupprásinni. Við komum þvínæst við hjá Ljósafossvirkjun, en uppgötvuðum fyrst þá að við höfðum týnt einhverjum við eitthvert vatn á leiðinni, en smám saman týndist “flestir” aftur í hópinn. Ómeðvituð um að einhverja vantaði fórum við upp að Úlfljótsvatnskirkjunni og ætluðum okkur að fara nesjavallaleiðina meðfram þingvallavatni. Við á subarunum vorum svo sniðugir, að vera á nagladekkjum, en þeir sem lifðu ennþá eftir sumrinu áttu heldir erfiðara með að klifra upp svellin. Þegar á Nesjavelli var komið eftir langa leið og erfiða, var það ljóst… okkur var ekki ætlað að fara lengra.Svellinn voru alveg jafn hál, en brekkurnar brattari. Svo það varð til þess að við snerum við og fórum sömu leið til baka. Á meðan höfðu þeir sem týndust farið hinu megin við vatnið, sem var að vissu leiti gáfulegra en það þýðir samt ekki að það hafi verið skemmtilegra.
Nýjungagjarn!
Sigurður Ýmir, 12.01 2009, undir Ljósmyndun
Núna eru nákvæmlega 3 mánuðir og 6 dagar síðan ég skrifaði hér síðast, og finnst nú alveg viðeigandi að gera eitthvað í málunum. En sem sagt, á þessum 3 mánuðum og 6 dögum hefur ýmislegt gerst, t.d. að hinum ófríða en margþekkta bónusgrís var flaggað á alþingishúsið.Þar að auki eru jólin liðin,fylgjandi nóg af gjöfum og komið árið 2009. Og svo er hann Skjóni gamli farinn, gamli econline-inn, var seldur núna rétt fyrir jól.
En nú er ég svo afskaplega nýjungagjarn, að ég strengdi áramótaheit
S.s. ég hef oft séð fólk vera að prófa þetta sem kallast photo-a-day, og er markmiðið með því að taka eina mynd á dag í heilt ár. Hingað til hefur mér gengið ágætlega, en sökum “tölvuvandræða”, þá byrjaði ég ekki á þessu fyrr en 8. jan. og verð því að bæta það upp með 7 dögum 2010.
Mappan!
En hérna eru fyrstu fimm sköpunarverkin.



















