Sigurður Ýmir Richter’s blog

Tag: Rassavinir

Breiðavík og rassavinir

Sigurður Ýmir, 17.07 2008, undir Ljósmyndun

Helgina síðustu var flogið til Egilsstaða og átti að taka sér langa helgi í víkunum (Fimmtudagur til Mánudags ) =)
Móðurbróðir minn átti að vera skálavörður í Breiðuvík og mér var boðið að koma út eftir, og hvernig gat ég annað en þegið það.
Og ekki nóg með það, heldur komst ég að því tveim dögum áður en ég lagði af stað hafði ég komist að því að það var ljósmyndahópur að fara ferð í víkurnar sömu helgina, en hálfum mánuði fyrr hafði ég verið að vorkenna mér af því að ég komst ekki með í ferðina.

Á laugardeginum fórum við yfir í Húsavík, og skoðuð býli í eyði, en á leiðinni til baka úr Húsavík hittum við ljósmyndahópinn og bossavinina. Allir þar auðvitað í svaka góðu skapi, en þó ekki bara út af Carlsbergnum. Ég gat ekki verið með gæjunum nema í nokkrar mínútur en samt, þetta voru áhugaverðar mínútur.
Betri lýsing á ferðalagi bossavinanna er t.d. á blogginu hans Óskars.

Lítið fleira var gert í ferðalinu eftir þetta annað en teknar myndir, rúntað um fjöruna og æft sig á riffilinn.

 

Dallandspartur í Húsavík

Hólshjáleiga

Gamli bærinn á Hóli (Stúdíóið hans kox… ekki beint til fyrirmyndar)

Gilsárvellir á Borgarfirði eystri

Húsavíkurbærinn

Í fjörunni í Breiðuvík

 

Á Gagnheiði

 

33 Comments :, , , , , more...

Ertu að leita að einhverju?

Skelltu inn leitarorðinu í kassann hér fyrir neðan: