Sigurður Ýmir Richter’s blog

Tag: Skorradalur

Ein helgi, tvær réttir!

Sigurður Ýmir, 06.10 2008, undir Ljósmyndun

Kem kannski með þetta full seint… en betra er seint en aldrei.
S.s. núna helgina 20. og 21. september var farið í tvær réttarferðir.
þeirri fyrri var heitið austur í­ Þverárrétt með fjölskyldunni. Þar var fleira af fólki en rollum og sýndi fólk mikil tilþrif við að reyna að koma þessum örfáu rollum inn í réttina.
Svo þegar fyrsta hollið var komið inn var farið að flokka. Þar voru bókstaflega ein rolla og tveir menn á hvern fermetra. Oftar en einu sinni voru gerðar morðtilraunir á myndavélinni af gjörsamlega kexrugluðum og snælduvitlausum heilalausum rollum.
Þannig gekk það nú fyrir sig hjá hverju hollinu á fætur öðru, og þegar síðasta rollan var dregin í­ dilk, virtist réttin hreinsast af bæði mönnum og rollum og á leiðinni heim keyrðum við samsíða traktorum með kerrur troðfullar af rollum og rolluskít.

Þann 21. fór ég í ljósmyndaferð með hóp af lmk-ingum. Þar var ferðinni heitið í­ ­ réttir Kolbeinsstaðahreppi. Þar voru teknar myndir af rollufjárunum, en öfugt við hina réttina, þá voru fleiri rollur en menn en samt sem áður voru margfalt færri rollur þarna en fyrir austan.
Síðan var haldið áfram og var keyrt yfir í­ Skorradalinn, þó með pulsustoppi á­ Borgarfirði. Í Skorradalnum vantaði alla þessa “haustliti” sem áttu ví­st að vera eitt aðalmyndefnið í ferðinni. Þegar þangað var komið og haldið áfram yfir í­ hvalfjörðinn virtist alltaf einn og einn bí­ll týnast úr hópnum.
Í Hvalfjörðinn var komið í­ sudda og skí­taveðri. Stoppuðum í­ “draugabæ”, en þar virtist alltaf einhver vera heima, en samt var ekki lí­flegra en í­ kirkjugarði. Þar bæði gekk fólk um svæðið og týndist úr hópnum, og það endaði með því að aðeins einn bí­ll var eftir í hópnum þegar átti að fara að leggja af stað aftur heim.

 

 

Leave a Comment :, , , , more...

Ertu að leita að einhverju?

Skelltu inn leitarorðinu í kassann hér fyrir neðan: